Til baka í verkefni Greidd markaðssetning

Biang Reykjavík · Google Ads

Fyrsta greidda herferðin fyrir shaanxi-núðlustaðinn í Reykjavík. Tíu dagar í birtingu, mælt frá fyrstu sýningu.

Google Ads · Performance Max · 5.8. til 14.8. 2026
Línurit yfir smelli á dag, 5.8. til 14.8. 2026. Byrjar undir 25 smellum á dag og nær hæst 6.082 smellum þann 12.8. 0 05.08. 14.08. 6.082

Smellir á dag · tölur úr herferðarskýrslu viðskiptavinarins

Verkefnið

Biang opnaði án nokkurrar greiddrar markaðssetningar og án leitarsögu. Enginn var að slá inn nafnið, því enginn þekkti það. Verkefnið var því ekki að ná fólki sem var þegar að leita, heldur að komast fyrir augun á fólki sem vissi ekki að staðurinn væri til.

Hvað við gerðum

Við settum upp Performance Max herferð, byggðum efnið og textana og keyrðum hana í tíu daga á föstu dagsþaki. Fyrstu fimm dagarnir voru rólegir og dýrari á smell. Frá 10. ágúst tók birtingin stökk og skilaði mest 6.082 smellum á einum degi.

Hvað tölurnar sýna

Tölurnar hér að neðan koma beint úr herferðarskýrslu viðskiptavinarins og eru sýningar og smellir, ekkert annað. Mælingar á umbreytingum voru ekki virkar á tímabilinu, svo ekkert í þessum tölum sannar pöntun. Næsta skref er að tengja mælingarnar og fara yfir birtingarstaðina áður en meira fé fer í herferðina.

  • 137.864Sýningar
  • 16.966Smellir
  • 12,31%Smellihlutfall
  • 10Dagar í birtingu

Tölur úr Google Ads herferðarskýrslu viðskiptavinarins fyrir 5. til 14. ágúst 2026.